Hafa samband
AI-fulltrúar (Agents)

Fulltrúar sem vinna í kerfinu þínu – með þínum reglum.

Gervigreindarfulltrúi getur sótt upplýsingar, lagt til svör og framkvæmt afmörkuð verk með tengdum þjónustum. Við byrjum á verkefninu sem þarf að leysa og ákveðum hvað má gerast sjálfvirkt og hvað þarf samþykki starfsmanns.

Hvað er AI-fulltrúi – og hvað ekki

Er

Hugbúnaður sem notar gervigreind, gögn og verkfæri til að vinna verkefni. Hann getur haft spjallviðmót eða unnið í bakgrunni. Aðgangur ræðst af auðkennum og heimildum. Microsoft er að gefa agentum eigið auðkenni í Entra (Agent ID), að hluta enn í forútgáfu, en hvort sem er á aðgangur ekki að ná lengra en verkefnið krefst.

Er ekki

Töfralausn sem „lagar CRM-ið“. Agent ofan á óskipulögð gögn skilar hratt röngum svörum. Grunnurinn kemur fyrst.

Byrjum á því sem er til

Við metum tilbúna eiginleika í Dynamics 365 og Microsoft 365 Copilot áður en við smíðum nýtt. Nú er líka hægt að vinna með Dynamics 365 Sales og Customer Service beint úr Microsoft 365 Copilot í gegnum sérstaka agenta og viðbætur. Framboð, tungumálastuðningur og kostnaður ráðast af vöru, svæði, leyfum og útgáfustöðu. Microsoft kynnir nú breytingar jafnóðum í stað tveggja útgáfubylgna á ári, svo við greinum á milli almenns framboðs og forútgáfu áður en ákvörðun er tekin um rekstur.

Undirbúningur sölufundaSamantekt viðskiptasögu og fyrri samskipta til yfirferðar
Nýir mögulegir viðskiptavinirTillögur að flokkun og eftirfylgni út frá samþykktum viðmiðum
Eftirfylgni í söluDrög að næstu samskiptum sem sölufólk metur og samþykkir
Yfirsýn yfir erindiSamantekt upplýsinga sem þjónustufulltrúi þarf til að halda áfram
Flokkun fyrirspurnaTillögur að flokki og viðtakanda, með leið fyrir óljós erindi
Skráning erindaAðstoð við skráningu og uppfærslu innan skilgreindra heimilda
ÞekkingargrunnurLeit í samþykktum heimildum og drög að greinum fyrir ábyrgðaraðila
GæðaprófanirPrófun svara á íslensku og ensku, heimilda og afhendingar til starfsmanns
Tilboð

Eitt verkefni. Prófum gagnsemina.

Afmörkuð prófun með samþykktum árangursviðmiðum. Við miðum við 4–8 vikur þegar gögn, aðgangur og umfang liggja fyrir; verð og tími eru staðfest í tilboði. Niðurstaðan getur verið agent í rekstri, einfaldari sjálfvirkni eða að gera ekkert að sinni.

Tengist aftur… / Rejoining the server…

Tenging mistókst, reynt aftur eftir sek.

Náði ekki að tengjast.
Reyndu aftur eða endurhladdu síðuna.

Lotan var sett í bið.

Náði ekki að halda áfram.
Reyndu aftur eða endurhladdu síðuna.